Skip to main content

Heimsókn frá Færeyjum


www.namsgagnastofnun.is 5. september 2006:

Undanfarið hafa tveir ritstjórar frá Föroya Skúlabókagrunnur, þeir Birgir Kruse og Gundur Mortensen, verið í námsdvöl hjá Námsgagnastofnun til að kynna sér uppbyggingu og innihald námsefnisvefjar stofnunarinnar. Eftir skoðun á námsefnisvefjum sem á boðstólum eru á Norðurlöndunum töldu þeir að vefur Námsgagnastofnunar bæri af í þeim hópi og óskaði forstöðumaður stofnunarinnar, Helena Dam á Neystabø, þess vegna eftir því að fá að senda starfsmenn til að kynna sér vefinn betur. Ritstjórarnir dvöldu hjá Námsgagnastofnun í viku og áttu gott samstarf við starfsfólk, einkum þó Hildigunni Halldórsdóttur tölvunarfræðing, sem hefur í mörg ár borið hita og þunga af uppbyggingu vefjar Námsgagnastofnunar, nams.is.

Föroya Skúlabókagrunnur, sem er systurstofnun Námsgagnastofnunar í Færeyjum, hefur fengið sérstaka aukafjárveitingu frá færeyska menntamálaráðuneytinu og samtökum sveitarfélaga til að byggja upp vef sinn og hefur stofnunin nú sótt um leyfi til að þýða og staðfæra 33 gagnvirk verkefni og námsvefi sem Námsgagnastofnun gefur út.